Ungir jafnaðarmenn skora á ríkisstjórnarflokkana að breyta afstöðu sinni og samþykkja tillögu Samfylkingarinnar á komandi þingvetri og lækka þannig matarverð meðalfjölskyldunnar hér á landi um rúmlega fjórðung eða 200 þúsund krónur á ári. Í tilkynningu frá ungum jafnaðarmönnum mun slík breyting koma öllum til góða.
Í tilkynningunni segir að lækkun matvælaverðs hafi ekki verið forgangsmál stjórnarflokkana og að þeir hafi beinlínis kosið gegn slíkum tillögum.
„Ungir jafnaðarmenn fagna tillögu Samfylkingarinnar um lækkun matvælaverðs þar sem lagt er til að virðisaukaskattur á matvöru verði lækkaður um helming, vörugjöld af matvælum verði felld niður sem og innflutningstollar í áföngum. Ungir jafnaðarmenn leggja áherslu á að hið nýja fyrirkomulag um stuðning við bændur verði unnið í góðu samráði við þá,“ segir í tilkynningunni.