Götuljós slökkt á höfuðborgarsvæðinu

Þó nokkur umferð var á Hringbraut í kvöld þrátt fyrir …
Þó nokkur umferð var á Hringbraut í kvöld þrátt fyrir myrkrið. mbl.is

Slökkt var á götuljósum í öllum sveitarfélögum frá Reykjanesi og upp á Akranes, á Suðurnesjum, í Dalvíkurbyggð, Borgarbyggð og Fljótsdalshéraði milli klukkan 22 og 22.30 í kvöld, í tengslum við upphaf Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík. Andri Snær Magnason rithöfundur átti hugmyndina að myrkvuninni og lítur á hana sem stóran gjörning, en ljósmengun kemur alla jafna í veg fyrir að fólk sem býr í þéttbýli geti barið augum stjörnur himinsins og norðurljós. Lítið sást þó til stjarna á mestöllu höfuðborgarsvæðinu vegna skýja en mikil ró og fegurð færðist yfir borgina og fallegar skuggamyndir urðu til.

Sýnt var beint frá myrkvanum í Sjónvarpinu. Hér sést Andri …
Sýnt var beint frá myrkvanum í Sjónvarpinu. Hér sést Andri Snær ræða við fréttamann Sjónvarps. mbl.is
Fallegar skuggamyndir urðu til í Reykjavík þegar slökkt var á …
Fallegar skuggamyndir urðu til í Reykjavík þegar slökkt var á götuljósunum. mbl.is
Ljósin kvikna aftur, um kl. 22.30.
Ljósin kvikna aftur, um kl. 22.30. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert