Rjúpnaskytta fundin heil á húfi

Rjúpnaskytta sem leitað var í Bitrufirði er fundin heil á húfi. Maðurinn sem er á sjötugsaldri fór til veiða við annan mann í morgun og höfðu þeir mælt sér mót klukkan 16:00 í dag. Hann skilaði sér ekki og rétt fyrir klukkan 18:00 barst beiðni um aðstoð björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert