Fjórir voru handteknir í Keflavík í nótt vegna fíkniefnamáls, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Fyrst hafði lögreglan afskipti af tveim mönnum í bíl, þar sem fundust vísbendingar um fíkniefnaneyslu. Í framhaldi af því var farið heim til mannanna þar sem fundust 50 grömm af hassi og smáræði af amfetamíni og e-pillum.
Tveir til viðbótar voru handteknir á heimilinu. Þar fundust einnig lyfseðilsskyld róandi lyf. Lögreglan nauð aðstoðar sérsveitar af Keflavíkurflugvelli í málinu.