Átján ára stúlku var nauðgað af tveimur karlmönnum fyrir utan Þjóðleikhúsið aðfararnótt laugardags. Nauðgunin þykir keimlík annarri hópnauðgun sem framin var bakvið Menntaskólann í Reykjavík fyrir skömmu. Hörður Jóhannesson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík, segir nauðgunina óhugnanlega líka þeirri sem framin var fyrir hálfum mánuði. Þar voru tveir menn einnig á ferð og eru ófundndir. Blaðið segir frá þessu í dag.