Það hefur snjóað á Akureyri undanfarna daga og gleðjast eflaust margir skíðamenn þar í bæ. Gert er ráð fyrir að hægt verði að opna skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fljótlega en ekki næstu daga þrátt fyrir að talsvert hafi snjóað í nótt. Snjóframleiðsla er í fullum gangi í Hlíðarfjalli enda er um þriggja gráðu frost í fjallinu.
Börnin kætast örugglega líka og væntanlega verða gerðir margir snjókarlar í görðum á Akureyri í dag.