Prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi hófst í dag klukkan 12 og er kosið á 16 kjörstöðum víðsvegar um kjördæmið. Kjörfundur verður opinn til klukkan 18 í dag, en frá 10 til 12 á morgun. Félagar í Samfylkingu og þeir sem lýsa yfir stuðningi við flokkinn hafa rétt til að taka þátta í kosningunni.