Úrslit í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi liggja nú fyrir. Guðbjartur Hannesson sigraði í prófkjörinu, varð í 1. sæti með 477 atkvæði, Karl Matthíasson fékk 552 atkvæði í 1.-2. sætið, Anna Kristín Gunnarsdóttir 582 í 1.-3. sæti og Sigurður Pétursson 790 atkvæði í 1.-4. sæti. 1668 greiddu atkvæði og voru 69 seðlar auðir og ógildir.