Tilraun var gerð til nauðgunar á veitingastað í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins. Um var að ræða hóp útlendinga sem gerði sig líklegan til nauðgunar inni á veitingastaðnum. Til mannanna sást og afstýra tókst nauðguninni og var lögreglan strax kölluð á staðinn.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík voru "nokkrir menn" handteknir, sem tengdust málinu, hvort sem var að miklu eða litlu leyti og voru þeir fluttir í fangageymslur. Þeir voru yfirheyrðir af rannsóknarlögreglunni í gær en ekki liggur fyrir hvort eða hversu margir kunna að verða ákærðir í tengslum við málið.