Annar mótorhjólamaðurinn í röð var sýknaður af ákæru um utanvegaakstur í gær þegar héraðsdómur dæmdi í máli hans vegna aksturs í hlíðum Dyrfjalla í Ölfusafrétti. Maðurinn var stöðvaður í þyrlueftirliti í byrjun júní og neitaði sök í málinu. Hann viðurkenndi að hafa ekið í umrætt sinn á vegslóða og hélt því fram að slóðinn væri gamall og notaður af bifreiðum, vinnuvélum, fjórhjólum og torfærutækjum. Ákært var fyrir utanvegaakstur sem er brot á náttúruverndarlögum en dómurinn tiltók að engin skilgreining væri í lögunum á hugtakinu "utan vega" eða "vegur". Í greinargerðinni með lagafrumvarpinu væri vísað til 2. gr. umferðarlaga en þar væri vegur skilgreindur sem vegur, gata, götuslóði, stígur, húsasund, brú, torg, bifreiðastæði eða þess háttar, sem notað er til almennrar umferðar.
Dómurinn skoðaði ljósmyndir af svæðinu og fór dómari einnig í vettvangsgöngu. Segir í niðurstöðum dómsins að á myndunum megi greinilega sjá veg eða slóða sem ökutæki hafi farið um í langan tíma.
Segir í dóminum að hafi það verið tilgangur löggjafans að útiloka akstur á slíkum slóðum þá yrði verknaðarlýsing í náttúrverndarlögum og umferðarlögum að vera skýrari. Við fyrrgreindan slóða hafi engar merkingar verið sem bönnuðu akstur en full þörf væri á slíkum merkingum ef banna ætti akstur á honum.
Ástríður Grímsdóttir, dómari við Héraðsdóm Suðurlands, dæmdi málið. Verjandi ákærða var Björn Þorri Viktorsson hrl. og sækjandi var Gunnar Örn Jónsson, fulltrúi sýslumannsins á Selfossi.