Íslenskur togari fékk tundurdufl í vörpuna fyrir utan Vestfirði og er á leið til hafnar á Ísafirði, samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni. Sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar eru komnir til Ísafjarðar og munu rannsaka tundurduflið síðar í dag.