Á Möðrudalsöræfum brotnuðu allar rúður í fólksbíls í morgun og einnig nokkrar í björgunarsveitarbíl í miklu grjótfoki. Þá hefur verið óskað eftir aðstoð björgunarsveita vegna skemmda á íþróttahúsinu á Reykjum í Hrútafirði, og er þar líklega þakið að fjúka af. Togarinn sem slitnaði frá bryggju í Hafnarfirði í morgun er enn strandaður en stálbátur sem rak frá höfninni er nú við bryggju, samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu.