Um síðustu helgi voru mynduð brot 158 ökumanna sem óku yfir leyfilegum hámarkshraða í Hvalfjarðargöngunum. Meðalhraði hinna brotlegu var 89 km/klst. Sá sem hraðast ók mældist á 146 km hraða en viðurlög fyrir slíkan ofsaakstur eru 70 þúsund króna sekt og ökuleyfissvipting til þriggja mánaða.