Mikil ófærð og fjöldi bíla situr fastur á Víkurvegi í Grafarvogi

Borgarbúar máttu moka út bíla sína í morgun.
Borgarbúar máttu moka út bíla sína í morgun. mbl.is/Kristinn

Mikil ófærð er á Víkurvegi í Grafarvogi í Reykjavík og situr þar fjöldi bíla fastur í snjónum, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni í Reykjavík. Er þeim tilmælum beint til ökumanna að fara ekki Víkurveginn heldur finna sér aðrar leiðir. Bílarnir sem sitja fastir hamla verki snjóruðningstækja, en lögregla og björgunarsveitir reyna nú eftir mætti að aðstoða ökumenn sem hafa fest bíla sína.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert