Maður sem var við vinnu í nýbyggingu á Akranesi í dag varð fyrir því óláni að skjóta sjálfan sig í fótinn með naglabyssu. Maðurinn var staddur hátt í byggingunni þegar óhappið varð og var honum slakað niður á jafnsléttu. Hann var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Hann er ekki talinn alvarlega meiddur.