Ungir framsóknarmenn leggjast gegn RÚV ohf.

Ríkisútvarpið í Efstaleiti.
Ríkisútvarpið í Efstaleiti. mbl.is/Árni Sæberg

Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna (SUF) samþykkti í dag samhljóða ályktun þar sem þingmenn eru hvattir til þess að samþykkja ekki fyrirliggjandi frumvarp um RÚV ohf.

Meðal þess sem fram kemur í ályktuninni er að SUF telur að hvorki sé hagsmunum RÚV, né almennings, best borgið með hlutafélagavæðingu heldur sé réttara að huga að því að breyta RÚV í sjálfseignarstofnun með breska ríkisútvarpið BBC sem fyrirmynd.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Stjórn Sambands ungra framsóknarmanna leggst gegn því að frumvarp um Ríkisútvarpið ohf. verði samþykkt, og RÚV þannig gert að hlutafélagi.

SUF telur að hagsmunum RÚV og almennings sé ekki best borgið með breytingu af þessu tagi, og telur vænlegra að skoða kosti þess að gera RÚV að sjálfseignarstofnun. Bendir SUF á að þekktasta almenningsútvarp heims, BBC í Bretlandi, er rekið sem sjálfseignarstofnun og er sem slíkt leiðandi í framleiðslu á bæði menningar og afþreyingarefni.

Þá telur SUF að málið sé ekki nægjanlega undirbúið og telur það fráleitt að frumvarpið hafi verið lagt fram á Alþingi án þess að afstaða hafi verið tekin til stórra spurninga, svo sem aðkomu RÚV að auglýsingamarkaði sem og stöðu RÚV á samkeppnismarkaði almennt. Stíga þarf mjög varlega til jarðar svo að ekki myndist fákeppni á þeim markaði með tilheyrandi neikvæðum áhrifum fyrir neytendur.

SUF leggur áherslu á nauðsyn þess að hér á landi starfi öflugt ríkisútvarp, sem nái til allra landsmanna og hafi ákveðnum skyldum að gegna við framleiðslu á innlendu dagskrárefni. Það að breyta RÚV í hlutafélag telur SUF hins vegar aðeins vatn á myllu andstæðinga RÚV og þeirra sem vilja einkavæða starfsemi þess.

SUF hvetur því þingmenn til þess að samþykkja ekki fyrirliggjandi frumvarp, en þess í stað leggja fyrir menntamálaráðherra að hefja undirbúning að því að breyta RÚV í sjálfseignarstofnun sem hafi að fyrirmynd breska ríkisútvarpið BBC.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert