Ljós verða tendruð á Óslóarjólatrénu á Austurvelli í Reykjavík á sunnudag klukka 16. Tréð var hoggið í Finnerud í Sørkedalen, Oslomarka, fyrir utan Osló og er rúmlega 12 metra hátt.
Rúm hálf öld er síðan Norðmenn færðu Íslendingum í fyrsta sinn grenitré að gjöf til að skreyta Reykjavík.
Fram kemur á vef Reykjavíkurborgar, að Lúðrasveit Reykjavíkur hefur dagskrána kl. 15:30 með því að leika jólalög. Kl. 16 tekur Dómkórinn við og flytur þrjú lög áður en Guttorm Vik, sendiherra Noregs á Íslandi færir Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, borgarstjóra, og öðrum Reykvíkingum tréð að gjöf. Eftir að borgarstjóri hefur tekið við trénu fær hinn 11 ára norsk-íslenski Jóel Einar Halldórsson þann heiður að kveikja ljósin á trénu góða.
Jólasveinarnir Giljagaur, Bjúgnakrækir og Skyrgámur eru komnir í bæinn í tilefni af þessum atburði og munu mæta á Austurvöll.