Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. segir, að það sé mat forsvarsmanna fyrirtækisins að fyrirhugaðar breytingar á áfengisgjaldi og virðisaukaskatti á áfengi muni að óbreyttu hafa í för með sér stórfelldar verðhækkanir á áfengi. Einnig muni tekjur ríkissjóðs aukast verulega en ekki standa í stað eins og haft hefur verið eftir fjármálaráðherra í fjölmiðlum.
Í tilkynningu frá Ölgerðinni segir, að rætt sé um að hækkun á áfengisgjaldi eigi að vega á móti lækkun virðisaukaskatts í 7% svo tekjur ríkisins standi í stað. Fyrirhuguð hækkun geri þó gott betur enda sé afleiðingin sú, að verð á öllum tegundum áfengis muni hækka verulega og færa ríkissjóði auknar tekjur, sem mælist í milljörðum.
Í tilkynningunni kemur fram, að miðað við þær tillögur, sem rætt sé um, hækki flaska af vodka úr 4250 krónum í 5410 krónur eða um 27,3%. Flaska af brennivíni hækki um 25,8%. Þriggja lítra kassi af raunvíni hækki úr 4190 krónum í 4850 krónur eða 15,8% og þriggja pela flaska af tilteknu rauðvíni hækki úr 1490 krónum í 1593 krónur eða um 6,9%. Þá hækki 0,5 lítra dós af Egils Gull bjór úr 199 krónum í 228 krónur eða um 14,6%.
Þessar verðbreytingar miðast við að virðisaukaskattur fari í 7% og áfengisgjald hækki um 58% eins og lagt er til í frumvarpi fjármálaráðherra.
Hvetur Ölgerðin ráðamenn til að endurskoða þá hækkun sem verði á áfengisgjaldi í kjölfar lækkunar á virðisaukaskatti svo gjaldheimta standi í stað í heildina litið.