Ögmundur Jónasson, Katrín Jakobsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir leiða lista Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í sameiginlegu forvali fyrir þrjú kjördæmi sem fram fór í dag. Alls buðu þrjátíu sig fram í forvalinu.
Lokatölur úr forvali VG á höfuðborgarsvæðinu, það er Reykjavík Suður, Reykjavík Norður og Suðvesturkjördæmi.
Niðurstaða úr talningu óháð ákvæðum um kynjakvóta samkvæmt kosningareglunum. Á kjörskrá voru 1796, greidd voru 1093 atkvæði og kjörsókn því 61%, 35 atkvæði voru auð eða ógild.
Flest atkvæði í fyrsta sæti
Ögmundur Jónasson 832 atkvæði
Katrín Jakobsdóttir 665 atkvæði
Kolbrún Halldórsdóttir 591 atkvæði
Flest atkvæði í fyrsta og annað sæti
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir 764 atkvæði
Álfheiður Ingadóttir 525 atkvæði
Árni Þór Sigurðsson 435 atkvæði
Flest atkvæði í fyrsta, annað og þriðja sæti
Gestur Svavarsson 491 atkvæði
Auður Lilja Erlingsdóttir 468 atkvæði
Paul Nicolov 373
atkvæði
Flest atkvæði í fyrsta, annað, þriðja og fjórða sæti
Mireya Samper 518 atkvæði
Steinunn Þóra Árnadóttir 461 atkvæði
Guðmundur Magnússon 448 atkvæði
Næst inn í fjórða sæti með yfir 300 atkvæði voru:
Andrea Ólafsdóttir
Kristín Tómasdóttir
Jóhann Björnsson