Hátíðardagskrá á afmæli Kristjáns Eldjárns

Níutíu ár verða liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrverandi þjóðminjavarðar og forseta Íslands, miðvikudaginn 6. desember. Í tilefni af því er efnt til hátíðardagskrár í Þjóðminjasafni Íslands sem hefst klukkan 12 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins.

Við þetta tilefni verða m.a. kynntar rannsóknaniðurstöður ársins 2006 og mun dr. Anna Lísa Rúnarsdóttir mannfræðingur flytja fyrirlestur um verkefnið sem hún vann að í stöðunni. Hvernig skyldi hafa verið að búa í torfbæ um miðja 20. öld? Þetta er meðal þess sem Anna Lísa velti fyrir sér en hún rannsakaði lífið í torfbæjunum á tímabilinu 1850 til búsetuloka fram yfir 1950. Í tengslum við rannsókn sína tók Anna Lísa meðal annars viðtöl við fjölda fólks sem man eftir að hafa átt heima í torfbæ, segir í fréttatilkynningu.

Í framhaldi af erindi Önnu Lísu verður í Forsalnum opnuð sýning sem byggist á rannsóknum hennar: Á tímum torfbæja: híbýlahættir og efnismenning í íslenska torfbænum frá 1850. Myndir og textar ásamt úrvali gripa varpa ljósi á þær miklu breytingar sem urðu á þessu síðasta tímabili torfbæjanna.

Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður flytur ávarp og fulltrúi afkomenda dr. Kristjáns Eldjárns afhendir gjöf bóka- og skjalasafns hans. Greint verður frá ráðningu í rannsóknarstöðu dr. Kristjáns Eldjárns árið 2007 og milli klukkan 13 og 16 verður opið hús í Setbergi, nýju húsi Þjóðminjasafnsins, í Suðurgötu 43.

Í Setbergi eru nýjar aðalskrifstofur og bóka- og heimildasafn Þjóðminjasafnsins. Starfsmenn verða á staðnum og kynna starfsemina og gefst gestum og gangandi tækifæri til að hitta þá að máli og kynnast innri starfsemi Þjóðminjasafnsins ekki síður en sýningum.

Í hnotskurn
» Hátíðardagskrá verður í Þjóðminjasafninu í tilefni af því að níutíu ár eru liðin frá fæðingu dr. Kristjáns Eldjárns.
» Kristján var þriðji forseti Íslands, 1968-1980. Áður var hann þjóðminjavörður og sá um vinsæla sjónvarpsþætti um fornar minjar og muni í vörslu Þjóðminjasafnsins.
» Afkomendur Kristjáns munu afhenda safninu gjöf bóka- og skjalasafns hans.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert