Lögreglan í Reykjavík var í nokkur skipti í gær kölluð út vegna deilna heimilisfólks. Ágreiningurinn var af ýmsum toga en í einu tilfelli var rifist um tölvunotkun unglingsins á heimilinu en þar hafði ástandið farið úr böndunum. Lögreglan hefur áður í vetur sinnt útköllum þar sem þrætueplið var hið sama.