Lögreglan í Reykjavík stöðvaði fimm ökumenn fyrir hraðakstur í nótt, einn þeirra ók á 140 km hraða á klst og var með 15 daga gamalt ökuskírteini. Hann var tekinn á Gullinbrú þar sem hámarkshraði er 60 km/klst. Þrír ökumanna voru 17 ára. Piltarnir óku á 30-80 km/klst yfir leyfilegum hámarkshraða. Þá var einn ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur.