Mennirnir tveir sem meiddust í gærkvöldi, þegar tvær járnbrautarlestir rákust saman í aðgöngum 1 í Kárahnjúkavirkjun, voru fluttir á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri og verða útskrifaðir þaðan í dag. Mennirnir eru frá Ítalíu og hlutu lítilsháttar meiðsl að sögn læknis á sjúkrahúsinu.