Í nótt var brotist inn í gæludýraverslunina Trítlu í Nethyl í Reykjavík og páfagauknum Ísak stolið. Þjófarnir virðast ekki hafa haft áhuga á neinu öðru í versluninni en Ísak er af gerðinni African Grey, hann er stór fugl, grár á litinn með rautt í stélinu. Þessi gerð fugla er fremur sjaldgæf á Íslandi og þykir eftirsóknarverð sökum hermigáfu og málgleði. Ísak var ekki til sölu í búðinni en svona fuglar kosta á bilinu 200 til 300 þúsund krónur.
„Ísak var ekki til sölu, hann er gæludýrið okkar og við viljum að sjálfsögðu fá hann aftur hið fyrsta," sagði Rebekka Lea Te Maiharoa verslunarstjóri í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.
Að sögn Rebekku mun Ísak hafa barist hetjulega við þjófana því það var fiður út allt gólf. „Okkur þætti vænt um allar ábendingar um þjófnaðinn," sagði Rebekka sem sagði að lögreglan rannsakaði nú þjófnaðinn, en þetta er í annað sinn sem brotist er inn í verslunina og verðmætum gauk stolið.