Fimm tilraunir hafa verið gerðar til íkveikju í kaffistofu Lifrasamlagsins í Vestmannaeyjum undanfarin fjögur ár og óskar lögreglan í Eyjum eftir aðstoð almennings við að upplýsa hver geti verið að verki. Á fréttasíðunni Eyjar.net segir að svo virðist sem sá sem sé þarna að verki noti svartasta skammdegið til að reyna að kveikja í. Íkveikjutilraunirnar hafa allar verið gerðar milli september og febrúar frá árinu 2002.