Einhver hálka er í öllum landshlutum. Á Norðurlandi er verið að hreinsa vegi en þar er snjóþekja og éljagangur. Á Mývatnsöræfum og Möðrudalsöræfum er þæfingur og verið að hreinsa vegi. Verið er að opna Breiðdalsheiði.
Enn er unnið að frágangi við Sæbraut, einkum við gatnamótin
Dalbraut-Sundagarðar og þaðan til austurs. Einnig er unnið við frágang
Kleppsvegar og hávaðavarna þar.
Vegfarendur eru beðnir að sýna fyllstu aðgát meðan á þessum framkvæmdum
stendur.