Fjárhagsáætlun Akureyrarbæjar fyrir næsta ár gerir ráð fyrir að heildartekjur verði tæpir 12,2 milljarðar króna á næsta ári en heildargjöld tæplega 11,9 milljarðar samkvæmt samstæðureikningi og rekstarafgangur því tæpar 300 milljónir. Síðari umræða um áætlunina fer fram í bæjarstjórn í dag.
Veltufjárhlutfall samstæðureiknings er 1,4 og eiginfjárhlutfall er 0,35%.
Samkvæmt tilkynningu frá Akureyrarbæ verður haldið áfram að efla þjónustu við íbúa og ýmsar viðbætur í rekstrinum á þessu ári koma af fullum þunga fram í rekstri næsta árs. Er m.a. nefndur rekstur leikskólans Hólmasólar, hækkun niðurgreiðslna vegna barna hjá daggæsluaðilum, snjóframleiðslukerfi í Hlíðarfjalli o.fl.
Þá gerir fjárhagsáætlunin ráð fyrir miklum fjárfestingum í grunngerð samfélagsins og er það í samræmi við málefnasamning meirihlutaflokkanna, Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar.
Samkvæmt framkvæmdayfirliti Akureyrarbæjar eru framkvæmdir A-hluta rúmir 1,4 milljarðar. Þar af eru 175 milljónir vegna fræðslu- og uppeldismála og 690 milljónir vegna menningarmála og munar þar mest um menningarhús en áætlað er að framkvæma fyrir 680 milljónir vegna þess. Til æskulýðs- og íþróttamála verður varið 313 milljónum til framkvæmda og þar af fara 213 milljónir til byggingar fjölnotahúss í Hrísey. Ýmsar framkvæmdir vegna gatnamála eru áætlaðar 461 milljón.
Í B-hluta eru 885 milljónir áætlaðar til framkvæmda og munar þar mestu um hlut Norðurorku eða sem nemur 416 milljónum og 283 milljóna framkvæmdum við fráveitumál.
Skatttekjur aðalsjóðs eru áætlaðar tæpir 5,6 milljarðar króna og aðrar tekjur Akureyrarbæjar eru tæpir 6,6 milljarðar skv. samstæðureikningi.