Nýtt varðskip verður komið í flota Landhelgisgæslunnar um mitt ár 2009

Tölvuteikning af nýja varðskipinu sem verður smíðað í Chile
Tölvuteikning af nýja varðskipinu sem verður smíðað í Chile

Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra og Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, skrifuðu í dag undir smíðasamning við Carlos Fanta de la Vega, forstjóra Skipasmíðastöðvarinnar ASMAR í Chile um smíði á nýju varðskipi.

Varðskipið verður mun stærra, öflugra og betur búið en þau varðskip sem nú eru í rekstri. Ægir og Týr eru um 71 m á lengd og 10 á breidd og um 1.300 brúttótonn. Nýtt varðskip verður 93 metrar á lengd, 16 metrar á breidd og 4000 brúttótonn. Ægir og Týr, núverandi varðskip Landhelgisgæslunnar, eru um 71 metri á lengd og 10 á breidd og um 1300 brúttótonn. Togkraftur nýja skipsins verður um 100 tonn miðað við um 56 tonna togkraft á Ægi og Tý. Geta Landhelgisgæslunnar til að bregðast við, þegar stór flutningaskip eiga í hlut, margfaldast Fjöldi í áhöfn nýja varðskipsins verður svipaður og á núverandi varðskipum.

Skipið verður búið alls 3 hliðarskrúfum, snúanlegri framdrifsskrúfu auk tveggja aðalskrúfa. Sérstakt stýrikerfi verður í skipinu sem auðveldar mjög stjórn þess og hreyfingar. Þá verður skipið búið nýjustu siglingatækjum, búnaði til að gefa þyrlum eldsneyti á flugi og verið er að skoða hvers konar mengunarvarnarbúnaður verður í skipinu.

Skipasmíðastöðin ASMAR er ríkisfyrirtæki í Chile og sinnir viðhaldi og nýsmíði fyrir flota og á almennum skipasmíðamarkaði. ASMAR hefur alls smíðað 4 skip fyrir Íslendinga og þar er nú verið að smíða einn fullkomnasta togara heims fyrir Færeyinga. Skipið er hannað af Rolls Royce í Noregi og aðalvélar, gírar, skrúfubúnaður, snúanleg framdrifsskrúfa, dráttar- og akkerisvindur svo og allur stjórnbúnaður eru frá Rolls Royce í Noregi. Annar búnaður verður frá viðurkenndum framleiðendum í Evrópu.

Tilboð ASMAR nam 27,8 milljónum evra fyrir utan búnað sem LHG hafði val um að kaupa. Að teknu tilliti til þess að ákveðið var að taka hluta af slíkum búnaði (t.d. snúanlega framdrifsskrúfu) og til nokkurra breytinga sem gerðar voru á hönnun skipsins í skýringaviðræðum þá er samningsverðið 29,4 milljónir evra.

Samkvæmt samningnum er smíðatími skipsins 30 mánuðir og verður því nýtt varðskip komið í flota Landhelgisgæslu Íslands um mitt ár 2009.

Ríkiskaup hafa komið að gerð þessa samnings ásamt fulltrúum dóms- og kirkjumálaráðuneytis, fjármálaráðuneytis og Landhelgisgæslu Íslands. Carsten Fauner, skipaverkfræðingur, var íslensku nefndinni til ráðgjafar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert