Varað við fölskum atvinnutilboðum á netinu

Embætti ríkislögreglustjóra varar við fölskum atvinnuboðum á netinu og segir að nokkuð hafi borið á því að undanförnu, að netnotendur fái send atvinnutilboð á netföng sín. Í flestum tilfellum er um sölu- og markaðsstörf að ræða og þykjast fyrirtækin, sem kynnt eru til sögunnar vera leiðandi á því sviði á netinu. Í flestum tilfellum er um hreina svikastarfsemi að ræða, að sögn lögreglu.

Á heimasíðu ríkislögreglustjóra segir, að það eitt vaki fyrir þeim, sem að þessu standi, að fá aðgang að bankareikningum og nota þá til þess að millifæra peninga sem að jafnaði séu afrakstur afbrota. Með því að taka þessum tilboðum og veita umbeðnar upplýsingar geti fólk bakað sér refsiábyrgð. Ríkislögreglustjóri hefur áður varað við slíkum atvinnutilboðum en ítrekar það nú að gefnu tilefni.

Nefnd eru dæmi um spurningar, sem sendar voru á netfang nú á dögunum þegar eiganda þess hér á landi var boðin atvinna gegn því að hann gæfi upplýsingar sem birtar eru á ensku: 1. Your full name: 2. Your country: 3. Your full address. 4. Your mobile contact phone: 5. Your fixed/home contact phone: 6. Your work contact phone: 7. Your contact email: 8. Are you ready to start working with our company? (must be "Yes/No") 9. Are you ready to accept money transfers to your bank account (must be "Yes/No"). Er sérstök athygli vakin á 9. spurningunni þar sem leitað er samþykkis við því að veita aðgang að bankareikningi til að millifæra peninga inn á hann.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert