Margir sjúkraflutningar í dag

Mikill erill hefur verið í sjúkraflutningum á höfuðborgarsvæðinu í dag, 44 sjúkraflutningar höfðu verið skráðir um hálffimmleytið í dag frá klukkan 7.30 í morgun. Það þykir mikill fjöldi, að sögn vaktmanns hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Engin alvarleg slys hafa þó orðið. Einnig hefur verið annasamt hjá lögreglunni, mikið um árekstra og vandræði í umferðinni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert