Rotaðist þegar hún hljóp á vörutrillu

mbl.is

Lögreglan í Reykjavík þurfti að sinna nokkrum slysum í gær. Í útjaðri umdæmisins datt kona á sjötugsaldri og sneri sig illa, jafnvel talið að hún hafi brotnað. Kona á svipuðum aldri datt í stiga á veitingahúsi í miðborginni og bar sig illa, en báðar voru fluttar á slysadeild. Þriðja konan, nokkru yngri, rotaðist þegar hún hljóp á vörutrillu. Konan mun hafa jafnað sig fljótlega eftir óhappið.

Þá voru tveir skipverjar á Þór HF-4 fluttir á slysadeild í gærkvöld eins og þegar hefur verið greint frá. Þrír ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík í nótt. Fyrst tæplega þrítug kona en akstur hennar var stöðvaður í Grafarvogi. Áður hafði hún ekið á kyrrstæðan bíl. Um svipað leyti var karlmaður á líkum aldri tekinn á Vesturlandsvegi nærri Höfðabakka og um klukkustund síðar var tæplega hálffertugur karlmaður stöðvaður í Breiðholti, en hann hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.

Tuttugu og níu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í gær. Þau voru flest minniháttar en í einu tilviki þurfti að kalla til sjúkrabíl. Beita þurfti klippum til að ná farþega úr bíl eftir árekstur í vesturbænum um kvöldmatarleytið.

Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir fyrir hraðakstur. 18 ára stúlka var tekin á 132 km/klst hraða á Vesturlandsvegi við Ártúnsholt, en þar er leyfður hámarkshraði 80. Þess má geta að sama stúlka var tekin fyrir hraðakstur í haust en þó ók hún bíl sínum einnig langt yfir leyfðum hámarkshraða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka