Margir á ferð í miðborginni

mbl.is/Sverrir

Talsvert margir hafa verið á ferð í miðborg Reykjavíkur í kvöld að venju þótt veðrið hafi ekki verið sem best: rigningarsuddi og talsvert hvasst. Margir létu sér nægja að fylgjast með mannlífinu, skoða í búðarglugga og hlýða á tónlistarmenn sem léku jólalög og aðra tónlist en aðrir voru á þönum við að kaupa síðustu jólagjafirnar eins og gengur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert