Það var ekki aðeins í höfuðborginni, þar sem þessi mynd var tekin, sem jóladagur heilsaði með lítilsháttar jólasnjó, sem mörgum þótti kærkomin tilbreyting eftir vatnsveður og vinda undanfarinna daga. Sumir gripu tækifærið í dag og renndu sér, en farartækið var af óhefðbundnari gerðinni.
Það er ekki útlit fyrir að snjórinn tolli lengi, og var hann reyndar að mestu horfinn í borginni síðdegis, því að á morgun er spáð rigningu og hita vel yfir frostmarki.