Þúsund manns sóttu um er Icelandair auglýsti eftir flugfreyjum og flugþjónum og í dag þreyttu níuhundruð þeirra inntökupróf í þremur sölum í Háskólabíói við Hagatorg í Reykjavík. Um það bil eitt hundrað þeirra munu síðan fá sumarstarf um borð í þotum Icelandair.