Það gera sér flestir dagamun yfir áramótin og margir veitingamenn leggja mikið upp úr því að bjóða upp á glæsilega kvöldverði og dansleiki. Fréttavefur Morgunblaðsins leit inn hjá tveimur veitingamönnum og forvitnaðist um áramótin hjá þeim.
Í Perlunni verður boðið upp á glæsilega kvöldverði bæði á gamlárskvöld og á nýjársdag en á Domo er lokað á gamlárskvöld en boðið verður upp á kvöldverð og dansleik að kvöldi nýjársdags.