Gistinóttum í nóvember fjölgaði um 23%

Hótel Búðir á Snæfellsnesi. Gistinóttum á hótelum hefur fjölgað mikið …
Hótel Búðir á Snæfellsnesi. Gistinóttum á hótelum hefur fjölgað mikið á undanförnum mánuðum. mbl.is/Golli

Gistinóttum á hótelum í nóvember sl. fjölgaði um 23% milli ára, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni. Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um 20%. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinóttum fjölgaði um 45%. Fyrstu ellefu mánuðum ársins 2006 fjölgaði gistinóttum um 12% frá fyrra ári. Fjölgun varð á öllum landsvæðum, mest þó á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%.

Gistinætur á hótelum í nóvember síðastliðnum voru 70.900 en voru 57.400 í sama mánuði árið 2005, sem er fjölgun um rúmar 13 þúsund nætur. Aukningin var hlutfallslega mest á Austurlandi þar sem gistinætur fóru úr 1400 í 2100 milli ára. Á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða fjölgaði gistinóttum úr 5000 í 6500, eða um 30%. Á höfuðborgarsvæðinu nam fjölgunin 28% í nóvembermánuði, en fjöldi gistinátta fór úr 42.500 í 54.300. Á Norðurlandi fjölgaði gistinóttum um 23%, úr 2600 í 3200. Á Suðurlandi fækkaði gistinóttum hins vegar um 20%, úr 5900 í 4700.

Skiptingin milli Íslendinga og útlendinga í nóvember var þannig að gistinóttum útlendinga fjölgaði um 29% og Íslendinga um 13%. Útlendingar vega þó þyngra þar sem gistinætur þeirra eru tæp 68% af heildarfjölda gistinátta á hótelum í nóvember.

Gistirými á hótelum í nóvembermánuði jókst milli ára. Fjöldi herbergja fór úr 3519 í 3830, 9% aukning og fjöldi rúma úr 7160 í 7739, 8% aukning. Hótel sem opin voru í nóvember síðastliðnum voru 72 en 68 í sama mánuði árið 2005.

Fyrstu 11 mánuði ársins 2006 fór gistináttafjöldinn úr 992.800 í 1.111.600 milli ára. Fjölgun varð á öllum landsvæðum. Hlutfallslega varð aukningin mest á samanlögðu svæði Suðurnesja, Vesturlands og Vestfjarða þar sem gistinóttum fjölgaði um 23%. Á Norðurlandi nam aukningin 17%, Austurlandi 13%, höfuðborgarsvæðinu 11% og á Suðurlandi 4%.

Að sögn Hagstofunnar skiptist fjölgun gistinátta á þessu tímabili þannig, að gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 14% og útlendinga um 12%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert