Að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum veittu lögreglumenn, sem voru við eftirlit á Hafnargötu í Keflavík um hálf sex í morgun, athygli karlmanni sem var töluvert blóðugur í framan og með skurð á höfði.
Maðurinn tjáði lögreglumönnum að á sig hafi verið ráðist inn á skemmtistaðnum H-punktinum á Hafnargötu í Keflavík. Maðurinn var færður undir læknishendur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Ekki er vitað hver árásarmaðurinn er.