26 umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu

Tuttugu og sex umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring. Flest voru minniháttar en ljóst er að eignatjón varð nokkuð. Tveir ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í nótt. Sá fyrri, tvítugur piltur, var stöðvaður á Fífuhvammsvegi en sá síðari, hálffertugur karlmaður, var tekinn í miðborginni.

Þá stöðvaði lögreglan tvo aðra ökumenn sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Átján ára pilti, sem var stöðvaður í útjaðri Hafnarfjarðar snemma í morgun, var sömuleiðis gert að hætta akstri. Sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi en pilturinn var á stolnum bíl. Sami aðili er jafnframt grunaður um bensínþjófnað.

Tólf ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur í umdæminu í gær.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert