Fimmtíu og þrjú umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring. Flest óhöppin voru tilkynnt frá hádegi og fram undir kvöldmat, eða fjörutíu og þrjú.
Nokkrir ökumenn voru teknir fyrir hraðakstur en hluti þeirra ók langt yfir leyfðum hámarkshraða. Það vekur nokkra athygli í ljósi þess að akstursskilyrði voru mjög slæm.