Varað við grýlukertum á höfuðborgarsvæði

Grýlukerti á þakskeggi á höfuðborgarsvæðinu.
Grýlukerti á þakskeggi á höfuðborgarsvæðinu.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við grýlukertum en þau eru víða að finna þessa dagana. Segir lögreglan, að nokkur hætta geti stafað af grýlukertunum og því sé full ástæða til að hvetja vegfarendur til að sýna aðgát.

Eigendur og umráðamenn húsa eru beðnir um að bregðast við en samkvæmt lögreglusamþykkt er eiganda eða umráðamanni húss skylt að fjarlægja af húsi sínu snjó og grýlukerti, sem fallið geta niður og valdið hættu fyrir vegfarendur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert