Ungir jafnaðarmenn, ungliðahreyfing Samfylkingarinnar, gagnrýna þau ummæli Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns flokksins, í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins nú fyrr í vikunni að til greina komi að taka upp skólagjöld við Háskóla Íslands.
Í tilkynningu frá Ungum jafnaðarmönnum segir, að þeir séu hatramlega á móti skólagjöldum og telji að aðgangur að menntakerfinu eigi ekki undir neinum kringumstæðum að vera takmarkaður af efnahag námsmanna eða aðstandenda þeirra.
Það sé eitt af grunngildum jafnaðarstefnunnar að öflug menntun standi öllum þegnum þjóðfélagsins til boða og séu skólagjöld beinlínis andstæð þeirri hugsjón. Í staðinn eigi að horfa til nágrannaþjóða okkar á Norðurlöndunum í auknum mæli og fylgja fordæmi þeirra. Þannig séu háskólarnir í Danmörku t.d. mjög sterkir sé litið til aðstöðu, kennslu og rannsókna, án þess að nemendur séu rukkaðir sérstaklega fyrir það.
„Ungir jafnaðarmenn skora á Björgvin, sem og aðra skólagjaldaþenkjandi jafnaðarmenn, til að endurskoða afstöðu sína til málsins og beita sér þess í stað fyrir því að Háskóli Íslands megi vaxa og dafna. Í kjölfar tímabærs frumkvæðis menntamálaráðherra, þar sem fjárframlög til skólans eru stóraukin á næstu fimm árum, ættu þingmenn Samfylkingarinnar að ítreka framsýna stefnu flokksins í menntamálum, en ekki velta upp hugmyndum um skólagjöld. Slíkt samrýmist ekki jafnaðarmannahugsjóninni og er ekki vænlegt til árangurs," segir í ályktun.