Hlutfall bíla með díselvélar hefur aukist frá því lög um olíu- og kílómetragjald voru sett um mitt ár 2005. Með lögunum var fyrirkomulag skattlagningar á díselolíu einfaldað en jafnframt er olíugjaldið áfram lægra en samsvarandi skattlagning á bensín.
Fjármálaráðuneytið segir, að samkvæmt upplýsingum á vef Umferðarstofu hafi rétt tæplega 20.000 fólksbifreiðar verið fluttar til landsins árið 2006. Þar af voru 4600 knúnar með díselvélum en það er rétt tæpur fjórðungur innfluttra fólksbifreiða það ár. Sama ár voru afskráðar 9300 fólksbifreiðar sem þýðir að fyrir hverjar tvær sem fluttir voru inn til landsins fór ein af skrá.
Yfirgnæfandi fjöldi afskráðra fólksbíla eru með bensínvél og því eykst hlutfall bifreiða með díselvél í bílaflotanum. Þegar fyrirkomulagi skattlagningar á olíu var breytt var búist við að hlutdeild bifreiða með díselvélar í innflutningi lítilla fólksbifreiða yrði komin í 45% árið 2010.
Ráðuneytið segir, að í fyrra hafi mátt rekja 45% aukningar bifreiðaflotans til bifreiða með díselvél. Ef þessi þróunin haldi áfram, eins og búist sé við, muni markmið lagasetningarinnar nást.
Fjármálaráðuneytið segir, að aukin hlutdeild bifreiða með díselvélar leiði til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda á hvern ekinn kílómetra. Þótt fjölgun bifreiða auki heildarlosun bifreiðaflotans í landinu sé áætlað að breytt samsetning hans hafi minnkað meðaleyðslu og þar með losun um 0,6% árið 2006, einu ári eftir að fyrirkomulagi á skattlagningu díselolíu var breytt.