Sex ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut í gær. Sá er hraðast ók mældist á 136 km/klst þar sem leyfðu hámarkshraði er 90 km/klst, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Suðurnesjum. Tveir voru handteknir undir nú undir morgun á Suðurnesjum grunaðir um að aka bifreið undir áhrifum áfengis.