Festi fótinn í töskufæribandi og slasaðist

Vinnuslys varð rétt fyrir klukkan 14 í dag í Flugstöð Leifs Eiríkssonar þegar starfsmaður þýsks undirverktaka festist með annan fótinn í töskufæribandi, sem hann var að vinna við. Að sögn lögreglu var starfsmaðurinn fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, en hann hafði meiðst á fæti.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert