Ellefu umferðaróhöpp hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan sjö í morgun samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Rétt fyrir átta í morgun rákust tvær bifreiðar saman við gatnamót Kringlumýrarbrautar, Laugavegs og Suðurlandsbrautar.
Að sögn lögreglu varð slysið með þeim hætti að bifreið sem var að beygja til vinstri inn á Suðurlandsbraut ók í veg fyrir aðra bifreið sem ók norður eftir Kringlumýrarbrautinni. Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl.