Jón Ásgeir: „Mjög ánægjuleg niðurstaða“

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs.
Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs. mbl.is/Kristinn

Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, fagnar niðurstöðu Hæstaréttar í Baugsmálinu sem var kveðinn upp nú fyrir stundu. Hann segir niðurstöðuna „í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast.“ Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér.

Yfirlýsing Jóns Ásgeirs er eftirfarandi:

„Þetta er mjög ánægjuleg niðurstaða og í samræmi við það sem ég vissi í hjarta mínu að myndi gerast. Í sjálfu sér er ekki mikið meira að segja á þessari stundu annað en það, að núna eru komnar fram lyktir í því máli sem þeir félagar Haraldur Johannessen og Jón H.B. Snorrason fóru af stað með, þegar þeir réðust inn í Baug 28. ágúst árið 2002. Fyrst henti Hæstiréttur 32 ákæruliðum frá og nú hefur verið sýknað í þeim átta liðum sem eftir stóðu. Sérstakur saksóknari, Sigurður Tómas Magnússon, var skipaður í málið og í stað þess að meta það sjálfstætt hélt hann þessari vitleysu áfram. Hann flutti það sem eftir var af ákærunni í héraði og fyrir Hæstarétti. Við flutning málsins í Hæstarétti í síðustu viku viðhafði hann mjög ósmekkleg og ómakleg ummæli um mig og líkti mér við fjósamann sem stæli mjólkinni úr kúnum sem honum væri treyst fyrir. Sýknudómur Hæstaréttar í dag leiðir á hinn bóginn í ljós að það er hann sjálfur, Sigurður Tómas, sem er hinn eiginlegi fjósamaður í málinu. Hann situr í forinni sem þeir Haraldur Jóhannessen og Jón H.B. Snorrason skildu eftir sig þegar þeir hrökkluðust frá málinu.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert