Samfelld ísbreiða er á hraðferð inn Dýrafjörðinn. Fram kemur á fréttavefnum Þingeyri.is, að á hádegi í dag var ísinn að skríða inn á Haukadalsbótina og verði væntanlega komin að Þingeyrarodda undir kvöldið.
Á vefnum segir, ekki hafi í manna minnum áður sést svo mikill ís í firðinum en hann er orðinn ófær skipasiglingum.