Óróleg nótt eftir skóladansleik

Þrír ungir menn gista nú fangageymslu lögreglunnar á Akranesi. Fjölbrautaskóli Vesturlands hélt skóladansleik í sínum húsakynnum í gærkvöldi og í kjölfar hans voru unnin eignarspjöll á skólanum, rúður brotnar og skemmdir unnar á bíl sem stóð í grennd við skólann. Tveir mannanna hafa viðurkennt aðild að málinu og telst það að sögn lögreglunnar upplýst. Þriðji pilturinn sefur enn úr sér áfengisvímuna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert