Þriðja kæran gegn Guðmundi Jónssyni í Byrginu var lögð fram í gær. Kona um þrítugt sem var skjólstæðingur hans í Byrginu lagði kæru um kynferðislega misnotkun fram hjá sýslumanninum á Selfossi og fór í skýrslutöku hjá lögreglu. Guðmundur hefur sjálfur sagst ætla að kæra eina af þeim konum sem hafa kært hann fyrir kynferðislega misnotkun en samkvæmt kvöldfréttum RÚV hefur engin slík kæra komið fram.