Klósett var eyðilagt í einum af grunnskólum borgarinnar í gær, en í það hafði verið sett sprengja af einhverju tagi. Klósettið splundraðist og þykir mildi að enginn skyldi slasast við þetta uppátæki.
Þetta kemur fram á Lögregluvefnum. Þar segir að nokkuð hafi verið um strákapör á höfuðborgarsvæðinu í gær, og af þeim orðið talsvert tjón.
Á öðrum stað í borginni var vatnsslöngu stungið inn um glugga í kjallaraíbúð og skrúfað frá. Það var því ófögur sjón sem mætti húsráðendum þegar þeir komu heim til sín, enda hafði vatnið runnið um allt.
Bæði þessi mál eru nú til rannsóknar hjá lögreglunni.